Vinnuskólinn 2025

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar verður starfræktur frá 10. júní til 17. júlí, í tæpar sex vikur, fyrir elstu fjóra árganga grunnskólans. Vinnutími er 6 tímar á dag á virkum dögum, nema á föstudögum, þá er unnið í 5 tíma. 

Að vísu leitum við enn að umsjónarmanni og hópstjóra fyrir vinnuskólann, sjá frétt hér, en vonumst til að tryggja starfsemi hans sem fyrst með góðu fólki. 

Verkefni 

Vinnuskólinn er fyrsti vinnustaður mjög margra. Undanfarin sumur hefur Grundarfjarðarbær unnið að því að þróa námsefni og verkefni vinnuskólans, sem eru fjölbreytt sambland af námi og starfi, fræðslu og hvatningu. Við leitumst sérstaklega við að vanda fræðslu, efla frumkvæði nemenda og áhuga þeirra fyrir umhverfi sínu og fyrir starfinu, að kenna rétt vinnubrögð og fagna góðu verki. 

Þau sem taka þátt í allri dagskrá vinnuskólans fá greidd laun í samræmi við mætingu. Í lokin verður síðan skemmtilegt lokahóf.

Allir nemendur Vinnuskóla Grundarfjarðarbæjar fá umsögn um frammistöðu sína að sumarstarfi loknu. Atriði sem skipta máli í matinu eru: frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi, tillitssemi og samvinna, hæfni til að taka fyrirmælum, vandvirkni, afköst og meðferð verkfæra.  

Við hlökkum til skemmtilegs og uppbyggilegs sumars með nemendum og starfsfólki í vinnuskólanum okkar!

Laun 2025 eru þannig:

 

Tímakaup

7. bekkur (fæðingarár 2012)

1.365 kr.

8. bekkur (fæðingarár 2011)

1.517 kr.

9. bekkur (fæðingarár 2010)

1.820 kr.

10. bekkur (fæðingarár 2009)

 2.124 kr.

 

Umsóknareyðublöð má nálgast hjá skólaritara grunnskólans, á bæjarskrifstofu eða prenta út hér.

Mikilvægt er að skila inn umsókn í síðasta lagi 2. júní nk. Það má skila inn umsóknum rafrænt á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is, eða skila útfylltu blaði á bæjarskrifstofu eða til skólaritara. 

Sjá reglur vinnuskóla hér, mikilvægt að starfsfólk og foreldrar kynni sér þær vel.

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofunni í síma 430 8500 (milli 10-14 virka daga). 

Vinnuskóli Grundarfjarðarbæjar