- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Það athugist að bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 26. febrúar 2026 tillögu hafnarstjórnar Grundarfjarðarhafnar 24. febrúar 2026, um að gera breytingu á deiliskipulagstillögu sem auglýst var 17. febrúar 2026, vegna breyttra forsendna með kaupum á fasteigninni að Nesvegi 4.
Með þeim kaupum mun höfnin ráða yfir rúmlega 7200 m2 lóð á lykilstað á hafnarsvæðinu.
Neðangreind tillaga verður tekin úr auglýsingu 27. febrúar 2026 og breytt tillaga kynnt síðar.
---
Tillaga að deiliskipulagi var kynnt á vinnslustigi skv. 40. gr. skipulagslaga frá 14. nóvember til 1. desember 2025. Efnt var til fjögurra kynningar- og samráðsfunda um deiliskipulagstillöguna, þann 17. nóvember sl. og (frekara samtal við húseigendur) 4. febrúar sl. í Samkomuhúsi bæjarins. Umsagnir og athugasemdir bárust við vinnslutillöguna, sem hafðar hafa verið til hliðsjónar við mótun þeirrar deiliskipulagstillögu sem nú er auglýst.
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á bæjarstjórnarfundi 12. febrúar sl. að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og umhverfisnefnd hafði áður samþykkt tillöguna á fundi sínum 9. febrúar og hafnarstjórn sömuleiðis.
Nokkrar breytingar hafa orðið frá því að vinnslutillaga var auglýst:
Byggingarmagn á lóðum sem eru næst Grundargötu hefur verið minnkað um 20%.
Lóðir næst Grundargötu hafa verið minnkaðar og lóðir ná ekki eins langt að Gilósi og í vinnslutillögu.
Hámarkshæð bygginga á þessum lóðum var lækkuð úr 7,5 í 7 metra.
Á svæði sjávarmegin við tilvonandi nýja götu hafa metralóðir verið teknar út.
Lóðarmörkum breytt á lóðum næst nýjum viðlegukanti.
Gilósinn fær nú mun rýmra grænt svæði.
Lóðir sunnan Gilóss, við smábátahöfn, hafa verið betur skilgreindar og skilmálum þeirra breytt.
Lóðarmörkum á lóðum á Norðurgarði hefur verið breytt og þær færðar frá grjótvörn á grunni tilmæla frá Vegagerðinni um aðgengi. Þar er einnig lagnasvæði fyrir neðanjarðarlagnir.
Settir hafa verið skýrari skilmálar varðandi aðlaðandi ásýnd og frágang frá lóðum við Grundargötu að iðnaðarsvæði og göngustíg þar á milli gert hærra undir höfði hvað varðar umhverfisfrágang.
Göngustígur á milli iðnaðarsvæðis og húsa við Grundargötu verði akfær og akstur heimill fyrir húseigendur, gesti og viðhald á þeim hluta stígsins sem tekur við til suðurs, þegar götu sleppir.
Skipulagsstofnun birti 11. febrúar sl. ákvörðun um að stækkun Grundarfjarðarhafnar væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Deiliskipulagstillagan er auglýst á tímabilinu 17. febrúar - 31. mars 2026. Ábendingar og athugasemdir við tillöguna skulu berast í síðasta lagi 31. mars nk. í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Deiliskipulagstillagan er til sýnis í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Bókasafni/Sögumiðstöð, Grundargötu 35, hún er kynnt á vef bæjarins, og auglýsing birt í héraðsfréttablaðinu Skessuhorni og í Lögbirtingablaðinu.
Opið hús - frestað með vísan í ákvörðun bæjarstjórnar, sjá efst í frétt.
Svæðið sem til stendur að deiliskipuleggja er 24,9 hektarar og nær yfir Norðurgarð, Miðgarð og Suðurgarð hafnarinnar, en gert er ráð fyrir stækkun hafnarsvæðisins með landfyllingu og nýrri vegtengingu við þjóðveg 54.
Til framtíðar litið er þörf á nýjum viðlegukanti og betri aðstöðu fyrir ferðamenn við höfnina. Eftirspurn eftir lóðum við höfnina hefur aukist og betri vegtengingu vantar fyrir þungaumferð frá höfn (Norðurgarði/Miðgarði og aðliggjandi svæði) að þjóðvegi 54, Snæfellsnesvegi, og að iðnaðarsvæðinu vestan Kvernár.
Með nýrri vegtengingu er létt á þungaumferð í gegnum þéttbýlið austanvert, sem bætir öryggi, ekki síst fyrir gangandi vegfarendur. Þá eru komnar fram nýjar áskoranir á hafnarsvæðinu sjálfu varðandi flæði ólíkra hópa um hafnarsvæðið, þar sem afar mikilvægt er að tryggja öryggi gangandi vegfarenda samhliða þungri hafnarumferð.
Lengi hefur verið áformað að stækka hafnarsvæði Grundarfjarðarhafnar með landfyllingu til að auka rými fyrir hafnarstarfsemi, sbr. eldri aðalskipulagsáætlanir fyrir þéttbýlið. Vegagerðin hefur unnið forhönnun að útfærslu landfyllingar með nýrri vegtengingu og bryggjukanti. Einnig er gert ráð fyrir stækkun hafnartorgsins við hafnarvogina með smærri landfyllingu.
Deiliskipulaginu er ætlað að koma til móts við þessar áskoranir með því að skýra línur, bæta flæði og tryggja öryggi, auk þess að skapa aukið rými fyrir hafntengda starfsemi til framtíðar.
Blágrænar ofanvatnslausnir verða innleiddar á deiliskipulagssvæðinu skv. stefnu Grundarfjarðarbæjar í aðalskipulagi og því unnin blágræn ofanvatnsáætlun sem hluti deiliskipulagsins.
Hafnarsvæðið er áberandi einkenni í Grundarfjarðarbæ, nátengt ímynd samfélagsins og iðulega það fyrsta sem blasir við þegar komið er að bænum af sjó eða landi. Markmið deiliskipulagsins er því einnig að skapa aðlaðandi og öruggt hafnarsvæði sem íbúar geta verið stoltir af og gaman verður að heimsækja.
Grundarfirði. 17. febrúar 2026.
Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar