- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambandsins, var haldið í febrúarmánuði og var góð þátttaka hjá íbúum í Grundarfjarðarbæ. Í Grunnskóla Grundarfjarðar tóku börnin þátt og stóð keppnin í tvær vikur. Umsjónarkennarar í hverjum bekk sáu um að skrá samviskusamlega niður alla hreyfingu barnanna innan þessa tímabils. Grunnskólinn hreyfði sig samtals í 107.659 mínútur eða rúmlega 1.794 klukkustundir. Í Grunnskólanum eru í dag 112 nemendur og gera þetta því rúma 961 mínútu á hvert barn eða 16 klukkustundir! Vinsælasta hreyfingin meðal nemenda var útileikir með 29,1% af heildarhreyfingu, næst á eftir komu knattspyrna (17,9%), ganga (11,3%) og blak (11,1%).
Það liggur því í augum uppi að börnin í Grundarfirði eru dugleg að hreyfa sig, hvort sem það er að leika sér úti eða í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Fullorðna fólkið lét ekki sitt eftir liggja og var starfsfólk Leikskólans Sólvalla, Grunnskóla Grundarfjarðar og bæjarskrifstofunnar einnig skráð til leiks.
Bæjarskrifstofan hreyfði sig í 11.589 mínútur eða 193 klukkustundir í febrúar og var ganga vinsælust þar eða 37,3% af allri hreyfingu, næst á eftir voru blak (8,8%), Crossfit (8,6%) og fjallganga með 8%.
Starfsfólk Grunnskóla Grundarfjarðar hreyfði sig í 20.812 mínútur eða tæplega 347 klukkustundir og var ganga vinsælasta hreyfingin eða 33,4% af heildarhreyfingu, næst á eftir komu Crossfit (14,7%), heimilisstörf – miðlungs eða mikil ákefð (13,5%) og blak (7,8%).
Starfsfólk Leikskólans Sólvalla hreyfði sig í 15.033 mínútur eða rúmlega 251 klukkustund. Ganga var langvinsælasta hreyfingin eða með 49% hlut af heildarhreyfingu, næst á eftir komu blak (15,7%), líkamsrækt (10,9%) og Crossfit (4.3%).
Ljóst er að hreyfing skipar stóran sess í lífi margra Grundfirðinga og endurspeglast það í þessari miklu hreyfingu í Lífshlaupinu.
Í Grundarfirði er boðið upp á fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf. UMFG (Ungmennafélag Grundarfjarðar) býður upp á fjölbreytt úrval skipulagðs íþróttastarfs, en í vetur eru sjö íþróttagreinar í boði og styttist í að þær verði átta, en uppbygging á píluaðstöðu er í fullum gangi. Skotfélag Snæfellsness hefur staðið fyrir mikilli uppbyggingu síðustu ár og var stórt mót haldið á skotsvæðinu á Hrafnkelsstaðabotni í ágúst 2025. Nýir teigar og brautarmerkingar voru settar á frisbígolfvölinn síðasta sumar. Golfklúbburinn Vestarr festi nýlega kaup á Bárarvelli og fékk hann nýtt nafn í kjölfarið og heitir í dag Grundarfjarðarvöllur. Heilsueflingin 60+ er ávallt vel sótt, en æfingar eru fjórum sinnum í viku. Hesteigendafélag Grundarfjarðar er með aðstöðu vestan við bæinn og á svæðinu eru tíu hesthús, reiðvöllur og reiðhöll. Skíðadeild UMFG hefur einnig staðið í stórræðum undanfarið en nýtt og glæsilegt aðstöðuhús var byggt við skíðalyftuna í Grundarfirði.
Það er ekki í öllum bæjum af okkar stærðargráðu sem aðgengi er að sérstöku klifurhúsi, þar sem reyna má á samspil hugar og líkama, og síðast en ekki síst er ónefnt það dýrmæta aðgengi sem við höfum að fjölbreyttri náttúru, til að hreyfa okkur í og njóta, en það er rannsakað og margsannað, að ekki bara hreyfingin, heldur einnig útivistin sjálf í fallegri náttúru hefur afar jákvæð áhrif fyrir bæði sál og líkama.
Hér er listi yfir öll íþróttafélögin í Grundarfirði
Hér má finna upplýsingar um Heilsueflinguna 60+
Hér eru upplýsingar um Lífshlaupið, sem haldið er á hverju ári