- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 9. apríl 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Háubakka. Tillagan felur í sér að sex nýjar einbýlishúsalóðir eru skipulagðar við vestanverða Grundargötu, neðan þjóðvegar. Um er að ræða stórar einbýlishúsalóðir við sjávarsíðuna með stórkostlegu útsýni að Kirkjufelli. Heimilt er að byggja tveggja hæða einbýlishús á öllum lóðunum og á stærstu lóðinni er heimilt að byggja allt að 440 fermetra hús.
Bæjarstjórn hafði áður, þann 12. mars síðastliðinn, samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi bæjarins, vegna Háubakka. Með aðalskipulagsbreytingunni, sem nú er jafnframt auglýst, er reitur fyrir íbúðarbyggð (ÍB-4) stækkaður lítillega og er viðbótarrýmið ætlað undir lóðir fyrir einbýlishús í samræmi við vestustu húsin á Grundargötu. Stækkunin er um 8.000 fermetrar.
Grundarfjarðarbær lauk nýlega við deiliskipulag Ölkeldudals og auglýsti nýlega lausar lóðir til umsóknar. Þar er um að ræða aðrar íbúðargerðir, þ.e.a.s. fjölbýli og rað/parhús. Með nýju deiliskipulagi á Háubökkum munu einbýlishúsalóðir bætast við flóru þeirra lóða sem nú eru lausar til umsóknar. Þar sem deiliskipulag liggur fyrir getur handhafi lóðar sótt strax um byggingarleyfi.
Báðar skipulagstillögurnar (breyting aðalskipulags og nýtt deiliskipulag) eru nú auglýstar samhliða á Skipulagsgátt HMS. Kynningartíminn er 21. apríl - 2. júní 2026.
Aðalskipulag hér og Deiliskipulag hér
Tillögurnar liggja einnig frammi í Ráðhúsi Grundarfjarðar að Borgarbraut 16 og á bókasafni bæjarins í Sögumiðstöð, Grundargötu 35. Ennfremur eru tillögurnar birtar hér á vef Grundarfjarðarbæjar, í Skessuhorni og Jökli.
Mánudaginn 27. apríl nk. verður haldinn opinn kynningarfundur um tillögurnar, í Sögumiðstöðinni, Grundargötu 35, kl. 17:00-18:30.
Umsagnir og ábendingar óskast sendar gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 2. júní næstkomandi. Íbúar og aðrir hagaðilar eru hvattir til að koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum.
Að loknum kynningartíma verður farið yfir þær umsagnir og ábendingar sem borist hafa, og mun það því koma í hlut nýrrar skipulagsnefndar og bæjarstjórnar að ljúka skipulagsgerðinni. Skal hafa til hliðsjónar þær ábendingar og athugasemdir sem berast áður en lokaútgáfa aðal- og deiliskipulags er samþykkt og birt. Ekki þarf að auglýsa tillögurnar að nýju og óska eftir athugasemdum við þær nema gerðar verði umtalsverðar breytingar á þeim frá núverandi mynd.
Nánar um Háubakka:
Húsin munu standa yst í bænum norðan við Grundargötu sem er aðalgata bæjarins og jafnframt stofnvegur í umsjá Vegagerðarinnar. Íbúðarsvæðið verður framlenging á núverandi íbúðarsvæði vestast við Grundargötu og verður jafnframt aðkoman inn í bæinn að vestan. Huga þarf að því við hönnun svæðisins að Grundargata þjónar bæði íbúum Grundarfjarðar og umferð sem fer í gegnum bæinn. Einnig þarf að huga að góðum skilyrðum fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur og að gatan sé aðlaðandi sem almenningsrými. Gert er ráð fyrir þremur aðreinum inn á nýju lóðirnar sem um ræðir, eins og sjá má af myndum.
Búast má við að hús á lóðunum verði í 12-15 metra hæð yfir sjávarmáli og um 15 metra frá fjörukambi.
Í skilmálum er gert ráð fyrir því að ofanvatn geti sem best sigið ofan í jarðveg lóðar og að umframvatn eigi greiða leið til sjávar í samræmi við rammahluta aðalskipulags um blágrænar ofanvatnslausnir.
Háubakkar eru hluti af gömlu landbúnaðarlandi og hallar land til sjávar. Ennfremur rennur lækur gegnum svæðið og eru lóðirnar utan við flóðafarveg hans.
Nánari upplýsingar má finna í skipulagsgögnunum:
Tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar í tengslum við deiliskipulag Háubakka
Skipulagsgreinargerð Deiliskipulags Háubakka
Deiliskipulagsuppdráttur Háubakka