- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Örvar Þór Örlygsson tæknifræðingur hefur verið ráðinn til starfa hjá Grundarfjarðarbæ og hóf hann störf föstudaginn 27. mars sl.
Örvar Þór mun sinna starfi verkefnisstjóra tæknimála og framkvæmda hjá Grundarfjarðarbæ og annast þar fjölbreytt verkefni, skv. auglýsingu um starfið í lok janúar sl. og samþykkt bæjarstjórnar 26. febrúar sl. Meðal annars mun hann hafa umsjón og eftirlit með verklegum framkvæmdum bæjarins, bæði nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum, við fasteignir, gatnakerfi, fráveitu og önnur mannvirki og eignir bæjarins. Í starfinu felst t.d. gerð verk- og kostnaðaráætlana, umsjón með verðkönnunum og útboðsmálum, samningum við verktaka og hönnuði, eftirfylgni, verkeftirlit og kostnaðargát, auk þess samskipti og upplýsingagjöf um framkvæmdir og verkefni. Tæknifræðingur er yfirmaður starfsfólks þjónustumiðstöðvar bæjarins, hann á samskipti við forstöðumenn allra stofnana bæjarins, við verktaka, birgja, þjónustuaðila, viðskiptavini og aðra hagaðila.
Örvar Þór er vél- og orkutæknifræðingur B.Sc. frá Háskólanum í Reykjavík, hann er með sveinspróf í vélvirkjun og lauk 2. stigi vélstjórnar frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Örvar hefur unnið í verklegum framkvæmdum, við stálsmíði, suðu, rafvirkjun og verið á sjó. Hann hefur yfir 9 ára reynslu úr iðnaði, nýsmíði og framleiðslu, en undanfarið hefur hann starfað hjá fyrirtækinu RST net ehf. í Reykjavík, þar sem hann hefur aðallega unnið sem framleiðslustjóri en nú síðast sem hönnunar- og verkefnastjóri. Örvar hefur því góðan verklegan bakgrunn, reynslu af framkvæmdum, hönnun, tilboðsgerð og verkefnastýringu og af því að vinna með teymum, birgjum og viðskiptavinum.
Örvar Þór er um þessar mundir einnig í námi við Sjúkraflutningaskólann og samhliða starfinu hjá Grundarfjarðarbæ mun hann starfa á bakvöktum sem sjúkraflutningamaður í Grundarfirði, hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Örvar Þór ólst upp í Vestmannaeyjum. Hann er giftur Söndru Rut Steinarsdóttur, sem er úr Grundarfirði og eiga þau þrjú börn. Þau fluttu til Grundarfjarðar um mitt síðasta ár.
Við bjóðum Örvar Þór velkominn til starfa!