Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 26. febrúar 2026 tillögu hafnarstjórnar um að gera breytingar á tillögu að deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar sem nýlega var auglýst í Skipulagsgátt. Tillagan hefur nú verið tekin úr kynningu í Skipulagsgátt og á þeim stöðum þar sem hún lá frammi. 

Föstudaginn 20. febrúar sl. festi hafnarsjóður kaup á eigninni Nesvegi 4, gamla hraðfrystihúsinu. Telur hafnarstjórn að með því hafi forsendur á svæðinu breyst, en með kaupunum mun höfnin ráða yfir rúmlega 7.200 fermetra lóð sem mun gegna lykilhlutverki í tengslum við hafntengda starfsemi og þar með framtíðartekjur hafnar og bæjar.  

Á fundi hafnarstjórnar 24. febrúar var þessi breytta staða til umræðu og segir orðrétt í bókun hafnarstjórnar:

Hafnarstjórn áréttar mikilvægi þess að nýta nálægð við góða höfn og tækifæri til uppbyggingar sem því tengist, en telur að þörf fyrir nýjar lóðir sé nú minni eftir þessi kaup. Í ljósi þessara breyttu forsendna leggur hafnarstjórn því til við bæjarstjórn að gerð verði breyting á fyrirkomulagi lóða og landfyllingar frá því sem fram kemur í nýkynntri tillögu að deiliskipulagi hafnarsvæðis. 
Breytt tillaga verði mótuð og kynnt, þar sem gert sé ráð fyrir minna umfangi lóða, en áfram unnið að nýjum neðanbyggðarvegi og viðlegukanti, enda tekur mörg ár að tryggja stuðning fyrir fjárhagshlut ríkisins í slík mannvirki.

Sem fyrr segir samþykkti bæjarstjórn samhljóða þessa tillögu hafnarstjórnar á aukafundi 26. febrúar. Opið hús sem vera átti tvo daga í næstu viku, til kynningar á framlagðri tillögu, fellur því niður. 

Í framhaldi af ákvörðun bæjarstjórnar verður nú mótuð ný deiliskipulagstillaga, þar sem áfram er gert ráð fyrir neðanbyggðarvegi og nýjum viðlegukanti, en umfang lóða verður minnkað. Tillagan verður mótuð í samstarfi hafnarstjórnar, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarstjórnar.