Þjálfari óskast

UMFG auglýsir eftir þjálfara fyrir 7. flokk í knattspyrnu (börn 8 ára og yngri)Flokkurinn æfir 2x50 mín í viku.Áhugasamir sendi e-mail á freydisb@simnet.is

MORFÍS

Föstudaginn 14. janúar verður haldin Morfís keppni í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þar mun Fjölbrautaskóli Snæfellinga og Fjölbrautaskóli Suðurnesja etja kappi í 16 liða úrslitum mælsku og rökræðukeppni framhaldsskólanna.  

30 daga hreinsun á mataræði

Námskeið í boði fyrir þá sem vilja koma sér af stað í átt að bættum lífsstíl. Þú getur náð af þér 5 - 10 kg. á 30 dögum einnig er þetta er frábær leið til að komast  að því hvað í mataræðinu er að valda þér vandamálum s.s. orkuleysi, þreytu, blóðsykursvandamálum, gigt, sykursýki, vöðvabólgu og fleiri sjúkdómum.  

Byrjendanámskeið í olíumálun

Farið verður í skyssugerð, blöndun lita og málun, og kennt verður að stækka upp mynd og mála eftir uppstillingu að lokum verður endað á að mála hugarflugsmynd.  

Björgunarsveitin Klakkur - dagbók

Nú verður tekin upp sú nýbreytni að birta færslur úr dagbók björgunarsveitarinnar Klakks í Grundarfirði hér á  vefnum. Gerir þetta fólki kleyft að fylgjast með því frábæra starfi sem sveitin er að vinna.   5. jan 2011. Útkall kl. 17:30. Átta félagar mæta í útkall. Bátur með net fast í skrúfu. Báturinn sóttur á harðbotnabátnum Reyni og dreginn í land.   7. jan 2011. Útkall kl. 02:14. Níu félagar mæta í útkall. Hafnarvörður aðstoðaður við að festa bát sem var að slitna frá bryggju.   Báðum útköllum lauk á farsælan hátt.

Samkomuhús/óskilamunir

Mánudaginn 10.janúar og þriðjudaginn 11. Janúar Á milli kl 17 og 18 verða óskilaföt til sýnis – gætir þú átt eitthvað þar? Húfur, treflar, úlpur og jakkar! Það sem ekki verður sótt fer til RKÍ.   Húsverðir.  

Þrettándagleði í dag 10. janúar

Klukkan 18.30: Gamanið hefst klukkan 18.30 við Netaverkstæði G.Run þar sem við rifjum upp vikivakadans og söng, heyrum jafnvel eina sögu.   Klukkan 19.00: Göngum með kyndla fylktu liði frá Netaverkstæðinu um klukkan 19.00 að bílastæðinu við Grunnskóla Grundarfjarðar. Þar taka á móti okkur álfakonungur og -drotting. Syngjum og dönsum saman.    Fólk er hvatt til að koma með blys eða kyndil, vera í búning við hæfi og taka með sér heit kakó á brúsa og bolla með.   Virkjum dans og söngvöðva, skemmtum okkur saman

Sorphirðudagar 2011

Dagatal fyrir sorphirðu 2011 er komið á vefinn. Sjá má það í dálknum "Gott að vita" til hægri á forsíðunni.   Sorphirða 2011 

Hirðing á jólatrjám

Þeir sem vilja losna við lúin jólatré geta sett þau út við lóðarmörk hjá sér ekki síðar en mánudaginn 10. janúar, en starfsmenn bæjarins munu hirða þau upp þennan dag. Athugið að tré verða einungis hirt af bæjarstarfsmönnum þennan eina dag. Þeir sem vilja losna við trén fyrr, eða síðar, þurfa að fara með þau í gám sem er fyrir utan gámastöðina.

Hirða rusl eftir áramótin

Bæjarbúar eru vinsamlegast beðnir um að hreinsa upp eftir sig það rusl sem liggur á götum og gangstéttum eftir áramótin. Tökum höndum saman og höldum bænum okkar hreinum.