Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Í gær birtu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi skýrslu um óstaðbundin störf, sem unnin var af Rannsóknarsetrinu í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst fyrir Samtök sveitarfélag á Vesturlandi. Þar kemur m.a. fram:

"... að nokkuð stór hluti fólks telur að starf sitt mætti vinna meira óstaðbundið. Þó mikill meirihluti fólks vilji búa á sama stað og núna, gæti aukning óstaðbundinna starfa haft þó nokkur byggðaáhrif þar sem fjöldi fólks af höfuðborgarsvæðinu myndi vilja búa í landsbyggðunum ef starfið þeirra væri ekki staðbundið."

Rannsókn sem gerð var og skýrslan greinir frá, sýnir að margir (á vinnumarkaði) myndu kjósa að flytja til landsbyggðanna, m.a. á Vesturland, ef þeir gætu unnið meira óstaðbundið. Í rannsókninni var einnig spurt um hindranir fyrir frekari fjarvinnu og er bent á niðurstöður í skýrslunni sbr. hlekk hér að framan.

Af þessu tilefni er rétt að rifja upp og árétta aðstöðu til fjarvinnu í Grundarfirði: 

Fjarvinnuaðstaða - Samvinnurýmið Grundargötu 30

Að Grundargötu 30 rekur Grundarfjarðarbær skrifstofuhúsnæði til leigu. Hægt er að leigja lokaðar skrifstofur eða aðstöðu í opnu rými, sjá gjaldskrá. Grundarfjarðarbær sér um rekstur samvinnurýmisins, s.s. þrif, innkaup og nettengingar. Ljósleiðari er í húsinu og nýlega var lagt í endurbætur á gæðum ljósleiðarasambandsins þar. Í samvinnurýminu er sameiginleg eldhúsaðstaða og fundarherbergi. Húsnæðið er í hjarta bæjarins, við aðalgötuna og stutt er í alla þjónustu.

Gott fjarskiptasamband - ljósleiðari

Í dag er ljósleiðaratenging engin hindrun í Grundarfirði, hvorki í þéttbýli né dreifbýli.

Í tengslum við verkefnið "Ísland ljóstengt" voru heimili og fyrirtæki í dreifbýli tengd ljósleiðara á árunum 2018-2019, á kostnað Grundarfjarðarbæjar, með sérstökum styrk ríkisins vegna dreifbýlis. Míla keypti síðar ljósleiðarainnviðina af Grundarfjarðarbæ og starfrækir þá.  

Sumarið 2024 var svo þeim ánægjulega áfanga náð að lokið var við að ljósleiðaratengja öll hús í þéttbýlinu, í kjölfarið á eftirfylgni bæjarstjórnar og dýrmætum ábendingum íbúa

Skólar - leikskólavist

Leikskólinn Sólvellir í Grundarfirði tekur á móti börnum að jafnaði frá 12 mánaða aldri. Í dag komast 12 mánaða börn strax að - það er enginn biðlisti hjá okkur. Sótt er um leikskóladvöl rafrænt í gegnum íbúagátt á vef Grundarfjarðarbæjar.

Grunnskóli Grundarfjarðar og Tónlistarskóli Grundarfjarðar eru undir sama þaki, ásamt íþróttahúsi/sundlaug.

Skólarnir okkar vinna allir eftir nýlega endurskoðaðri menntastefnu frá 2023 og er í gangi markviss vinna við framfylgd stefnunnar.

Fjölbrautaskóli Snæfellinga er staðsettur í Grundarfirði og tekur á móti nemendum af öllu Snæfellsnesi. Skólinn er einnig með öflugt fjarnám sem hentar fólki víðsvegar um heiminn. 

Stuðningur og ráðgjöf í atvinnumálum

Grundarfjarðarbær, ásamt öðrum sveitarfélögum a´ Vesturlandi, starfrækir atvinnu- og byggðaþróunarsvið, rekið af SSV, og er það hluti af stoðkerfi atvinnulífsins á svæðinu. Stuðningur er í boði við einstaklinga og fyrirtæki í Grundarfirði, m.a. í formi ráðgjafar á sviði atvinnumála. 

Alltaf má hafa samband við skrifstofu SSV í síma 433-2310 til að fá samtal við ráðgjafa, en auk þess eru ráðgjafar reglulega með viðverutíma hjá okkur í Grundarfirði. Nánari upplýsingar á vef SSV og í síma Ráðhúss Grundarfjarðar, 430 8500.  

Leiguhúsnæði í Grundarfirði

Leigufélagið Bríet er sjálfstætt starfandi leigufélag í eigu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, rekið án hagnaðarsjónamiða. Á vef Bríetar segir að markmið félagsins sé að vera hluti af uppbyggingu og styrkingu leigumarkaðar sem stuðlar að öryggi á langtímaleigumarkaði með sérstaka áherslu á landsbyggðina og í samstarfi við sveitarfélögin í landinu. 

Á vef Bríetar eru upplýsingar um húsnæði til leigu, en félagið á nokkrar íbúðir í Grundarfirði. Á vefnum er nú m.a. auglýsing um lausa leiguíbúð í glænýju raðhúsi við Ölkelduveg í Grundarfirði. Hér má svo finna upplýsingar um hvernig sótt er um íbúð og um mögulegan rétt leigjenda til húsnæðisstuðnings.

Lausar lóðir í Grundarfirði

Hér má svo finna upplýsingar um lausar byggingarlóðir, bæði íbúðarlóðir og fyrir atvinnuhúsnæði, sbr. nýjan lóðavef.

Aðrar upplýsingar ef þú ert að flytja til Grundarfjarðar

Á vef Grundarfjarðarbæjar má einnig finna ýmsar gagnlegar upplýsingar, ef þú ert að flytja í sveitarfélagið.