Nýtt deiliskipulag fyrir Ölkeldudal, tillaga febrúar 2025. Uppdráttinn má nálgast í tillögugögnum.
Nýtt deiliskipulag fyrir Ölkeldudal, tillaga febrúar 2025. Uppdráttinn má nálgast í tillögugögnum.

AUGLÝSING

Tillaga að nýju deiliskipulagi Ölkeldudals í Grundarfjarðarbæ
ásamt umhverfismatsskýrslu

Á fundi sínum 16. janúar 2025 samþykkti bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar að auglýsa tillögu að nýju, endurskoðuðu deiliskipulagi  Ölkeldudals, skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ásamt umhverfismatsskýrslu skv. 15 gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Nýtt deiliskipulag mun taka við af gildandi deiliskipulagi fyrir Ölkeldudal, sem er komið til ára sinna.

Með nýju deiliskipulagi verður hverfið í Ölkeldudal eflt, með fjölgun íbúða við Ölkelduveg og Borgarbraut. Samhliða verður Paimpolgarðurinn byggður upp sem skjólsæll almenningsgarður, til nota og dvalar á öllum árstíðum. Lögð er rík áhersla á gott samspil garðsins við skóla- og íþróttasvæðið og aðliggjandi byggð. 

Fjölgun íbúða er í samræmi við þá framtíðarsýn í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 að Grundarfjörður sé fjölbreyttur, með íbúðir fyrir alla. Mikil gæði felast í því að fjölga íbúðum og nýta vel þá innviði sem þegar eru fyrir hendi. Hverfið er afar vel staðsett í grennd við skóla- og íþróttasvæðið, Paimpolgarðinn, Fellaskjól, íbúðir eldri borgara og aðliggjandi útivistarsvæði. 

Við endurskoðun á deiliskipulaginu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á götum, gangstéttum og umferðarskipulagi til að stuðla að bættu umferðaröryggi fyrir alla vegfarendur. Sérstaklega er hugað að aðkomu og aðgengi að skóla- og íþróttasvæðinu með öryggi skólabarna í huga, auk þess sem bætt er við stígum, gangstéttum og öruggari gangbrautum á svæðinu. 

Samhliða uppbyggingu í Ölkeldudalnum verður fráveitukerfið bætt, með aðgreiningu skólps og ofanvatns, sjálfbærar fráveitulausnir innleiddar fyrir ofanvatnið og núverandi fráveitulagnir nýttar fyrir skólp. Blágrænt fráveitukerfi hefur þannig verið samþætt annarri skipulagshönnun. Þannig er tryggð hagkvæm innleiðing blágrænna ofanvatnslausna, þar sem þær verða óaðskiljanlegur hluti í yfirborðshönnun, uppbyggingu og frágangi gatna, gangstíga og grænna svæða.

Höfð var hliðsjón af umsögnum og athugasemdum sem bárust á fyrri stigum við gerð tillögunnar.

Hér má nálgast deiliskipulagstillöguna, en hún er sett fram í tveimur skjölum – smellið á viðkomandi hlekk:

Á árinu 2024 var kynnt skipulagstillaga og síðar vinnslutillaga fyrir Ölkeldudal, en tillagan sem hér er kynnt er lokatillaga og er athugasemdafrestur við hana til og með 28. mars 2025

Tillagan var birt í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt 2. febrúar sl. og á vef bæjarins www.grundarfjordur.is í dag, auk þess sem hún liggur frammi útprentuð í Ráðhúsinu og á Bókasafni Grundarfjarðar á opnunartímum. 

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna og senda athugasemdir gegnum Skipulagsgáttina, www.skipulagsgatt.is (mál 234/2024) í síðasta lagi 28. mars 2025. 

Í tengslum við gerð þessa deiliskipulags er nú einnig auglýst breyting á Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar, samþykkt til auglýsingar af bæjarstjórn 14. nóvember 2024 og staðfest af Skipulagsstofnun til auglýsingar í desember sl. Finna má auglýsingu og skipulagsgögn hér.  

Kynningarfundur um bæði aðal- og deiliskipulagstillöguna verður haldinn í Sögumiðstöðinni miðvikudaginn 19. febrúar nk. kl. 17:00.

Grundarfirði, 7. febrúar 2025,

Sigurður Valur Ásbjarnarson,  
skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar