Frá vinstri bæjarfulltrúarnir Jósef Kjartansson, forseti bæjarstjórnar, Loftur Árni Björgvinsson, Da…
Frá vinstri bæjarfulltrúarnir Jósef Kjartansson, forseti bæjarstjórnar, Loftur Árni Björgvinsson, Davíð Magnússon sem sat fundinn í stað Ágústu Einarsdóttur, Garðar Svansson og Sigurður Gísli Guðjónsson. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri, Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri og ritari bæjarstjórnar, og bæjarfulltrúarnir Bjarni Sigurbjörnsson og Signý Gunnarsdóttir.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

 

Fimmtudaginn 7. maí sl. var haldinn 311. fundur bæjarstjórnar. Fundurinn var sá fimmtugasti á kjörtímabilinu og að líkindum sá síðasti.

Fyrsti fundur bæjarstjórnar á kjörtímabilinu var haldinn 9. júní 2022 og hafa mörg mál verið á borði bæjarstjórnar síðan þá. Sum hafa verið tekin fyrir oftar en önnur og má þar nefna að bæjarstjórn hefur ítrekað ályktað um viðhald þjóðvega undir sama málsnúmerinu, sjá nánar í frétt hér. Skipulagsmál hafa einnig skipað stóran sess í vinnu og fundargerðum bæjarstjórnar á þessu kjörtímabili, sömuleiðis ný menntastefna og skólamál, ennfremur má nefna stór verkefni eins og Life-Icewater verkefnið og orkuskipti í Grunnskóla, íþróttahúsi og sundlaug.

Hér má finna allar fundargerðir bæjarstjórnar

Á öllum fundum bæjarstjórnar fer bæjarstjóri yfir „minnispunkta bæjarstjóra“ um störf bæjarstjórnar frá síðasta fundi ásamt stöðu helstu verkefna hjá stofnunum bæjarins. Minnispunktarnir gefa góða yfirsýn yfir þau verkefni sem unnið er að hverju sinni og má nálgast þá undir fyrsta dagskrárlið hvers fundar, sjá hér

Á kjörtímabilinu kom bæjarráð saman á 66 bókuðum fundum, en í bæjarráði sitja 3 af 7 bæjarfulltrúum. Í sveitarstjórnarlögum segir að bæjarráð fari ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins, hafi eftirlit með stjórnsýslu og fjármálastjórn, geri drög að fjárhagsáætlun og ársreikningum til bæjarstjórnar og sjái um mál í sumarleyfi bæjarstjórnar (júlí og ágúst) með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella.

Hér má finna fundargerðir bæjarráðs

Bæjarráð hefur rýnt tekjur bæjarsjóðs á hverjum fundi sínum, ekki síst útsvarstekjur, og borið þær saman við þróun fyrri mánaða. Í tengslum við það hefur bæjarráð/bæjarstjórn í mörg ár óskað eftir því að fá haldbetri upplýsingar frá innheimtuaðila útsvarsins, þ.e. Ríkisskattstjóra og Fjársýslu ríkisins, um samsetningu og skil útsvarstekna, sem er megintekjustofn hvers sveitarfélags. Engar slíkar upplýsingar fylgja innheimtum útsvarstekjum, en sveitarfélögin greiða ríkinu milljarða fyrir að sjá um innheimtuna. Á 654. fundi bæjarráðs 22. apríl sl. var kynnt fjárhagsgreining sem HLH ráðgjöf ehf. tók saman á rekstri, skuldum og sjóðsstreymi Grundarfjarðarbæjar fyrir tímabilið 2002-2029.   

Á fundi bæjarstjórnar 7. maí sl. þökkuðu bæjarfulltrúar fyrir farsælt samstarf á kjörtímabilinu, en bæjarstjórn og bæjarráð hafa átt afar gott samstarf, s.s. um fjármál og fjárhagsáætlunargerð, skipulagsmál, hagsmunagæslu fyrir samfélagið og fleiri stór mál sem bæjarstjórn hefur tekist á við. 

Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag og skal boðað til fyrsta fundar hennar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. fyrir miðjan júní nk.