Vegna bilunar í tækjabúnaði sundlaugar er ekki fyrirséð með opnun á sundlaug. Búið er að panta þann búnað sem bilaði. Tilkynnt verður um opnum með 3-4 daga fyrirvara.
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi vestan Kvernár – Iðnaðar og athafnarsvæði.
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 14. apríl 2015 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin á við lóðina Ártún 1, þar sem byggingarreitur er settur inn með nýtingarhlutafall 0,3. Lóðin stækkar um 5m til austurs. Gerð nýrrar jarðvegsmanar. Hámarkshæð mænis er 8m frá götukóta en hámarkshæð tanka má vera hærri. Sjá nánari upplýsingar á tillögu að breytingu.
Ársreikningar Grundarfjarðarbæjar A- og B- hluta sjóða fyrir árið 2014 voru lagðir fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 14. apríl 2014. Alls samanstanda reikningarnir af 10 sjóðum, sem skiptast í þrjá A-hluta sjóði og sjö B-hluta sjóði.
Þórir Bergmundsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilsugæslunni Grundarfirði föstudaginn 8. maí n.k.
Tekið er á móti tímapöntunum á
Heilsugæslustöð Grundarfjarðar,
í síma 432 1350
Guðrún Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku á HVE Grundarfirði föstudaginn 17.apríl n.k.
Tekið er á móti tímapöntunum á Heilsugæslustöð Grundarfjarðar, sími 432 1350.
Veittir verða styrkir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands í eftirfarandi verkefni:
1) Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar.
2) Verkefnastyrkir á sviði menningar.
3) Stofn- og rekstrarstyrkir menningarmála.
Styrkir úr Uppbyggingasjóði koma í stað styrkveitinga úr sjóðum menningar- og vaxtarsamninga. Uppbyggingarsjóður Vesturlands er samkeppnissjóður.
Einungis verður ein úthlutun á árinu 2015 fyrir verkefnastyrki á sviði menningar og stofn- og rekstrarstyrkja menningarmála.
Styrkjum til atvinnuþróunar og nýsköpunar verður einnig úthlutað að þessu sinni og aftur síðar á árinu og eru þessir styrkir eru opnir fyrir úthlutun allt árið.
Verklags- og úthlutunarreglur má finna HÉR
Frestur til að skila umsóknum er til 22. apríl 2015.