3.fl kv spilaði í Grindavík.

3.fl kv spilaði  á móti Grindavík í kvöld og tapaði 4-12. Kristín átti þrjú mörk og Hafdís Lilja eitt. Þetta var síðasti leikurinn hjá 3.fl á mótinu í sumar og hafa stelpurnar staðið sig vel og mæta reynslunni ríkari til leiks næsta sumar. 

4.fl kv tapar.

Sólin skein skært á vellinum í dag en ekki með okkar liðum. 4.fl kv fékk lið Víði/Reyni í heimsókn í dag og það er skemmst frá því að segja að við töpuðum báðum leikjunum 2-7. Mörk A liðsins gerð Dagfríður og Sigurrós og mörk b liðsins gerðu þær Björg og Bryndís.

Sigur og tap hjá 5.fl. karla

5.flokkur karla keppti við Víking Reykjavík í dag. A liðið sigraði 11-1 en B liðið tapaði naumlega 2-1. 

Frábær þátttaka í foreldrafótbolta.

Á þriðjudaginn var haldið foreldramót í fótbolta og var gaman að sjá hve margir skráðu sig til leiks eða um 40 manns. Foreldrar sýndu glæsileg tilþrif og sýndu krökkunum hvað í þeim býr, og krakkarnir stóðu sig vel í hlutverki þjálfara og dómara og hvöttu sín lið áfram. Lið Liverpool bar sigur úr býtum í ár og má því búast við harðri keppni í næsta móti

Skólaakstur

Grundarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í skólaakstur grunnskólabarna úr dreifbýli Eyrarsveitar fyrir næstu þrjú skólaár.   Útboðsgögn fást afhent á bæjarskrifstofu að Grundargötu 30 í Grundarfirði og einnig er hægt að nálgast þau hér.   Tilboð verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 19. ágúst kl. 11:00. 

S. Cecilsson gaf boli

Áður en farið var á pæjumótið um síðustu helgi fengu keppendur og fararstjórar afhenta boli með áletruninni Pæjurnar frá Grundó. Þessir bolir vöktu mikla athygli á mótinu og voru stelpurnar oft stopaðar og spurðar út í bolina. Það var fyrirtækið Soffanías Cecilsson sem gaf bolina.  

Tap hjá 4.fl.karla

Strákarnir töpuðu 4-3 gegn BÍ í dag, Brynjar skoraði öll okkar mörk. Strákarnir voru ekki að spila sinn besta leik í 53 mínútur af 70, en loksins hrukku þeir í gang og skoruðu 3 mörk á 9 mínútum og munaði minnstu að þeir næðu að jafna leikinn. Gaman var að sjá hvað margir mættu að horfa á leikinn í sólinni í dag.  

Harðbakur EA 3 landaði í Grundarfirði í morgun.

Harðbakur EA 3 kom til hafnar í Grundarfirði í morgun og landaði 120 t af fiski. Þar af fóru 80 tonn af karfa í vinnslu hjá Guðmundi Runólfssyni hf. Harðbakur mun væntanlega landa aftur í næstu viku karfa til vinnslu hjá Guðm.Runólfssyni hf. Harðbakur er í eigu Brims hf.  

Fasteign til sölu

Grundarfjarðarbær auglýsir til sölu raðhús að Sæbóli 37. Fasteignin er 172,9 fm alls, þar af bílskúr sem er 29,3 fm. Húsið er í 3ja húsa lengju, steinsteypt, 4ra herbergja.  

Áskrift að fréttum

Hægt er að gerast áskrifandi að fréttum sem birtast hér á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar. Undir hverjum flokki hér að ofan eru fréttasíður. T.d. er hægt að velja að fá aðeins tilkynningu senda í tölvupósti þegar fréttir breytast á íþróttasíðunni. Þeir sem hafa áhuga á almennum fréttum skrá sig á póstlistann undir "Stjórnsýsla".