Íbúaþingið verður laugardaginn 5. mars

Stýrihópur um undirbúning íbúaþings Grundfirðinga hefur tekið ákvörðun um að færa íbúaþingið til 5. mars n.k. í stað 19. febrúar, í samráði við ALTA. Með því gefst betri tími til undirbúnings og mótunar dagskrár og til kynningar meðal íbúa. Nú er bara að merkja við 5. mars á dagatalinu og taka daginn frá.

Hundur í óskilum í áhaldahúsi

Svartur Border collie hundur með hvítan blett á hnakka er í óskilum í Áhaldahúsi Grundarfjarðar. Eigandi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við verkstjóra í s: 691-4343

Myndir frá þorrablóti Grunnskóla Grundarfjarðar

Hér að neðan eru myndir frá sýningu og þorrablóti yngsta stig grunnskólans í dag:   Krakkarnir að fá sér af kræsingunum

Sýning og þorrablót í Grunnskóla Grundarfjarðar

Sýning og þorrablót er hjá yngsta stiginu í grunnskólanum, 1.-4. bekk, í dag.  M.a. er boðið upp á þorramat, sýningu á gömlum munum og fatnaði. Karitas Anna Þórðardóttir, sýndi nemendum hvernig á að vinna með ull, spinna og kemba og nemendur fengu síðan að prófa sjálfir.   

Stjörnumessan í Ísland í bítið í fyrramálið

Fulltrúar „Vorgleðihópsins“ verða í viðtali og taka lagið í Ísland í bítið í fyrramálið. Ekki missa af því! 

Undirbúningur íbúaþings

  Í undirbúningi er að halda íbúaþing í Grundarfirði eins og sagt hefur verið frá hér á vefnum. Það er ráðgjafafyrirtækið ALTA sem hefur verið fengið til að stýra íbúaþinginu, sem mun fjalla um skipulagsmál og fjölskyldustefnu. Stýrihópur verkefnisins hefur tekið til starfa og miðvikudagskvöldið 8. febrúar héldu þær Sigurborg Kr. Hannesdóttir og Hildur Kristjánsdóttir frá ALTA kynningarfund með bæjarstjórn, nefndum og forstöðumönnum stofnana bæjarins. Frá kynningarfundi í Sögumiðstöð í gær

Útrás grundfirskrar gleði

Eins og kunnugt er stefnir galvaskur hópur tónlistarfólks frá Grundarfirði að því að leggja undir sig einn stærsta skemmtistað landsins, Broadway í Reykjavík, föstudagskvöldið 11. febrúar n.k. Þar verður boðið upp á grundfirska Stjörnumessu, tónlistarveislu matreidda af 12 manna hljómsveit og hvorki meira né minna en 27 söngvurum frá Grundarfirði.  

Breytingar á tannlæknaþjónustu á Heilsugæslustöð Grundarfjarðar

Um áramótin kvaddi okkur Guðjón Valgeirsson tannlæknir, sem hefur þjónað hér í 20 ár. Hann mun hafa áfram stofu í Mosfellsbæ og geta viðskiptavinir hans sótt þjónustu þar á ferðum sínum til Reykjavíkur.  

Bæjarstjórnarfundur

Bæjarstjórnarfundur verður haldinn fimmtudaginn 10. febrúar kl. 17.00 í samkomuhúsinu. Á dagskrá eru fundargerðir bæjarráðs og hitaveitunefndar, fyrri umræða 3ja ára fjárhagsáætlunar, deiliskipulag hafnarsvæðis, fyrirhugaður samráðsfundur með íbúum og framkvæmdir við sjóvörnauk annarra gagna til kynningar.   Bæjarstjóri 

Þorrablót og bolludagurinn á leikskólanum

  Þann 2. febrúar sl. var þorrablót í Leikskólanum Sólvöllum. Dagskrá blótsins hófst á skemmtun í Samkomuhúsinu þar sem börnin sungu og skemmtu foreldrum og öðrum gestum. Að skemmtuninni lokinni var haldið á leikskólann þar sem snæddur var þorramatur með öllu tilheyrandi. Börnin skemmtu sér vel og voru ánægð með daginn en þeim líkaði maturinn misvel!