Hreyfivika UMFÍ verður dagana 28. maí - 3. júní

  Hin árlega Hreyfivika UMFÍ hefst á mánudaginn og að vanda er glæsileg dagskrá hreyfingar fyrir allan aldur komin út í Grundarfirði. Dagskránni er dreift í öll hús bæjarins í dag og á morgun svo allir ættu að geta kynnt sér hvaða möguleikar eru í boði þessa viku. Dagskrána má finna með því að smella hér.  

Vinnuskóli sumarið 2018

    Sumarið 2018 verður Vinnuskóli Grundarfjarðar starfræktur frá 4. júní til 9. júlí, alls í fimm vikur. Vinnuskólinn er fyrir unglinga sem lokið hafa 8., 9. og 10. bekk.   Nemendur hafa þegar fengið umsóknareyðublöð afhent í skólanum en einnig má nálgast þau hér og skila á bæjarskrifstofu.  

Hreyfivika UMFÍ er í næstu viku

Hin árlega Hreyfivika UMFÍ verður dagana 28. maí - 3. júní næstkomandi. Að vanda hefur verið útbúin dagskrá fyrir Grundarfjörð og eru allir hvattir til að taka þátt í Hreyfivikunni, hvort sem er þátttaka í dagskránni eða bara hreyfing á eigin forsendum.

Opinn framboðsfundur

 

Bæjarstjórnarfundur

216. fundur bæjarstjórnar Grundarfjarðar verður haldinn miðvikudaginn 23. maí 2018, í Ráðhúsi Grundarfjarðar, kl. 15:00.  

Auglýsing um kjörfund vegna sveitarstjórnarkosninga

Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Grundarfirði verður í Samkomuhúsi Grundarfjarðar laugardaginn 26. maí 2018.   Kjörfundur stendur yfir frá kl. 09:00 til kl. 22:00.   Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum.     Kjörstjórn Grundarfjarðar   

Tónlistarskóli Grundarfjarðar auglýsir

Innritun fyrir skólaárið 2018 – 2019 fer fram daganna 17. maí til 1. júní 2018 Kennt er á öll helstu hljóðfæri (sjá nánar hér að neðan). Nemendur fá einnig hópkennslu í tónfræði og tónheyrn.   Vinsamlegast skilið umsóknum til ritara grunnskólans eða á bæjarskrifstofu fyrir 1. júní nk.   Umsóknareyðublað

Framlagning kjörskrár

    Kjörskrá Grundarfjarðarbæjar vegna sveitastjórnarkosninga 26. maí 2018 hefur verið yfirfarin og staðfest.   Kjörskráin liggur frammi á bæjarskrifstofunni, almenningi til sýnis, frá og með miðvikudeginum 16. maí til kjördags á opnunartíma skrifstofunnar.   Athugasemdum við kjörskrá má koma á framfæri í samræmi við lög um kosningar til sveitarstjórna.  

Nemendur frá Paimpol í vinabæjarheimsókn

  Nemendur frá vinabæ Grundarfjarðar, Paimpol í Frakklandi, hafa verið hér í bænum frá því á laugardaginn, 12. maí, og munu dvelja hér í vikutíma. Það eru fjölskyldur nemenda úr sjötta, sjöunda og áttunda bekk í Grunnskóla Grundarfjarðar sem hýsa gestina meðan á dvölinni stendur og er búið að gera heilmikla dagskrá fyrir alla vikuna.    

Dimiterað í Grundarfirði

    Það var mikið húllumhæ þegar útskriftarnemendur úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga dimiteruðu í Grundarfirði í morgun. Fjörið byrjaði fyrir allar aldir en nemarnir fóru á fætur um 4:30 og mættu svo eldhressir heim til forseta nemendafélagsins og vöktu hann um klukkan hálf sex.   Þaðan hélt hópurinn í morgunverð í FSN þar sem farið var í leiki og ljóð um hvern og einn nemanda lesið upp. Loks var farið í vöfflukaffi með kennurum skólans.