Úrslit sveitarstjórnarkosninganna

Á kjörskrá voru 631. Alls greiddu atkvæði 557 eða 88,27%. D listi Sjálfstæðisflokks hlaut 268 atkvæði og fær 4 fulltrúa í bæjarstjórn. L listi Samstöðu - lista fólksins hlaut 265 atkvæði og fær 3 fulltrúa í bæjarstjórn. Auðir seðlar voru 18 og ógildir seðlar voru 6. Nánari upplýsingar um úrslitin fást á kosningasíðu Ríkisútvarpsins.

Lokatölur

Búið er að telja öll atkvæði við sveitarstjórnarkosningarnar í Grundarfirði. Alls greiddu atkvæði 557 eða 88,27%.   Atkvæði féllu þannig: D listi Sjálfstæðisflokks 268 atkvæði L listi Samstöðu - lista fólksins 265 atkvæði Auðir seðlar 18 Ógildir seðlar 6 

Búið að telja öll kjörfundaratkvæði

Búið er að telja öll kjörfundaratkvæði og hafa þau fallið þannig: D listi 209 atkvæði L listi 210 atkvæði Auðir seðlar og ógildir eru 18 Alls 437 atkvæði greidd á kjörfundi. Talning utankjörfundaratkvæða er hafin.

Búið að telja 74,1% atkvæða

Þegar búið er að telja 413 atkvæði sem er 74,1%, hafa þau fallið þannig: D listi 201 atkvæði L listi 199 atkvæði Auðir seðlar eru 13  

Nýjar tölur af talningu

Búið er að telja 337 atkvæði, sem er 60,5% atkvæða. Atkvæði hafa fallið þannig: D listi 180 atkvæði L listi 157 atkvæði  

Nýjar tölur

Búið er að telja 224 atkvæði eða 40,2% atkvæða og hafa þau fallið þannig: D listi 124 atkvæði L listi 100 atkvæði

Fyrstu tölur

Búið er að telja 116 atkvæði (20,8%) og hafa þau fallið þannig: D listi 73 atkvæði L listi  43 atkvæði

Talning atkvæða hafin

Talning atkvæða var að hefjast og má búast við fyrstu tölum innan skamms.

Bein útsending á vefnum

Mikið álag varð á tölvukerfi þegar opnað var fyrir vefmyndavélina sem er í samkomuhúsinu. Aðeins er því unnt að hafa beina útsendingu á Kaffi 59 og á Krákunni.    Tölur verða birtar hér um leið og þær liggja fyrir.

Talning atkvæða

Talning atkvæða hefst innan skamms í samkomuhúsinu. Núna kl. 22:40 er kjörstjórn að setja utankjörfundaratkvæði í kjörkassa. Talning hefst að því loknu.