13 millj. til Framhaldsskóla Snæfellinga

Samkomulag menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis um verkefni á sviði byggðamála   Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, undirrituðu á Akureyri í morgun samkomulag um átak í uppbyggingu menntunar og menningar á landsbyggðinni.  

Útskrift kennara 14. febrúar

Frétt tekin af heimasíðu Grunnskóla Grundarfjarðar;   Tveir kennarar voru að útskrifast úr fjarnámi Kennaraháskólans föstudaginn 14. febrúar.  Ásta Ólafsdóttir var að bæta við sig í námi en var þó áður með kennsluréttindi og Kolbrún Reynisdóttir var að útskrifast með kennararéttindi, B.Ed gráðu. Af þessu tilefni fengu þær afhentan blómvönd frá skólanum.   Þeim Ástu og Kolbrúnu eru færðar hamingjuóskir frá bæjarstjórn og starfsmönnum Grundarfjarðarbæjar.  

Álagning fasteignagjalda

Álagningu fasteignagjalda er nú lokið og hafa álögð gjöld verið send Búnaðabankanum til innheimtu, en fyrsti gjalddagi er 1. mars n.k.  Gjalddagar verða 7 eins og verið hefur undanfarin ár og gjaldendum er boðinn 3% staðgreiðsluafsláttur ef fasteignagjöldin eru staðgreidd fyrir 31. mars n.k.  

Fundað um sparnað

Það er ávallt markmiðið að rekstur sveitarfélagsins sé sem hagkvæmastur, að gætt sé kostnaðaraðhalds og reynt að finna leiðir til aukinnar hagkvæmni . Í tengslum við fjárhagsáætlunargerð ársins 2003 ákváðu forstöðumenn stofnana sveitarfélagsins að hafa með sér samráð um það hvernig ná mætti aukinni hagkvæmni í rekstrinum. Ákveðið var að setja á laggirnar litla nefnd sem gengur undir því ófrumlega heiti ,,sparnaðarnefndin”, en í henni sitja fulltrúar frá nokkrum stofnunum sveitarfélagsins.  

Skelveiði - ályktun bæjarstjórnar

Á fundi bæjarstjórnar sem lauk upp úr kl. 21.00 í kvöld var, eftir umræður um málið, samþykkt eftirfarandi ályktun bæjarstjórnar um ástand og horfur í skelfiskveiðum í Breiðafirði;  

Eyrbyggjafréttir - hollvinasamtökin

Eyrbyggjar, hollvinasamtök Grundarfjarðar, slá hvergi slöku við og héldu sinn 40. stjórnarfund þann 4. febrúar sl. Stjórnin hittist mánaðarlega og um þessar mundir er hún á fullu við að skipuleggja og viða að sér efni í næsta hefti í ritröðinni ,,Fólkið, fjöllin, fjörðurinn” – safn til sögu Eyrarsveitar.  

Íbúðir eldri borgara

Hönnuðir íbúða fyrir eldri borgara eru að leggja lokahönd á hönnun og frágang teikninga. Verið er að ákveða gólfefni, liti og viðartegundir í innréttingum, fyrirkomulag tækja í eldhúsi og fleira í þeim dúr. Hönnuðir settu sér að vera búnir fyrir lok febrúar með allar teikningar en af hálfu bæjarins er ýtt á eftir að þeir ljúki vinnu sinni sem allra fyrst, til að unnt sé að koma útboði af stað.  

Yfirlýsing frá sveitastjórna á Snæfellsnesi um framhaldsskólann

Framhaldsskóli Snæfellinga - tímamótaákvörðun -   Yfirlýsing frá bæjarstjórnum Snæfellsbæjar, Grundarfjarðarbæjar og Stykkishólmsbæjar og hreppsnefnd Helgafellssveitar     Í dag var gefin út í menntamálaráðuneytinu yfirlýsing umaðhafinn verði undirbúningur að stofnun framhaldsskóla á norðanverðu Snæfellsnesi, sem hefji starfsemi haustið 2004.  

Tímamótaákvörðun

Framhaldsskóli Snæfellinga tekur til starfa haustið 2004   Það er svo sannarlega ástæða fyrir Snæfellinga að fagna í dag og hefur fáni verið dreginn að húni hjá helstu stofnunum bæjarins, en eftirfarandi fréttatilkynning kom frá Menntamálaráðuneytinu í morgun: 

40. Stjórnarfundur

40. stjórnarfundur Eyrbyggja 4. feb 2003  kl 20:00 í Perlunni í Reykjavík   Viðstaddir: Elínbjörg Kristjánsdóttir, Gísli Karel Halldórsson, Hermann Jóhannesson, Hrafnhildur Pálsdóttir, Orri Árnason.