Í gær þriðjudag hófst vinna við áframhaldandi borun rannsóknarholu við Berserkseyri. Farið var úr 75 metrum í 138 metra, en fyrirhugað er að bora niður í 400 metra.
Borverktaki er Jarðboranir hf.
EB
Héraðsmótið í frjálsum var haldið í Stykkishólmi um síðustu helgi. Krakkarnir frá okkur stóðu sig mjög vel og voru til fyrirmyndar.
Á héraðsmótinu er keppt um farandbikar
Snæfell í Stykkishólmi urðu deildarmeistarar í körfubolta karla í gærkvöldi þegar þeir unnu Hauka úr Hafnarfirði. Grundarfjarðarbær óskar Hólmurum innilega til hamingju með árangurinn.
EB
Þann 27. október sl. var haldinn almennur kynningarfundur í Samkomuhúsi Grundarfjarðar um verkefnið “hverfisvæn leið gegnum Grundarfjörð”.
Þar voru tillögur verkefnisins til sýnis, en aðilar frá Vegagerðinni og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf, gerðu þar grein fyrir tillögunum og svöruðu fyrirspurnum.
Frétt úr Bæjarins besta:
Grundarfjarðarbær, Fjarðarbyggð, Ísafjarðarbær og Fjölmenningarsetur hafa átt í samstarfi um þýðingu á stöðluðum húsaleigusamningi á pólsku. Pólverjar eru langfjölmennasti hópur innflytjenda á Íslandi.
Gengið hefur verið frá ráðningu aðstoðarskólameistara við Fjölbrautarskóla Snæfellinga og hefur Pétur Ingi Guðmundsson verið ráðinn í stöðuna. Hann hefur störf í marsmánuði og mun aðstoða skólameistara við undirbúning skólastarfsins.
Sambýliskona Péturs Inga er Guðbjörg Gunnarsdóttir, þjóðgarðsvörður, Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.
Vegna vinnu við nýtt aðalskipulag dreifbýlisins mun fara fram fornleifaskráning í Eyrarsveit.
Það er fornleifafræðingurinn Jóna Kristín Ámundadóttir sem annast þessa vinnu og mun hún næstu tvo mánuði fara um svæðið og leita skipulega að menningarminjum. Hún mun einnig ræða við landeigendur/ábúendur eftir því sem við á.
Ef landeigendur/ábúendur hafa upplýsingar um fornleifar, má gjarnan hafa samband við Jónu Kristínu Ámundadóttur á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar í síma 430-8500 eða með tölvupósti á jonaka@grundafjordur.is. Allar upplýsingar um minjar á svæðinu eru vel þegnar.
Jökull
50. stjórnarfundur Eyrbyggja 24. feb. 2004 kl 20:00 í Lágmúla 6, í Reykjavík.
Viðstaddir: Ásthildur Elva Kristjánsdóttir, Orri Árnason, Bjarni Júlíusson, Hafdís Gísladóttir, Hermann Jóhannesson, Gísli Karel Halldórsson, Katrín Gísladóttir
Í síðustu viku afhentu hjónin Kristinn Nils Þórhallsson og Jórunn Jóna Óskarsdóttir Bæringsstofu ljósmyndir úr ljósmyndasafni Soffíu Jóhannsdóttur sem lengi starfaði við barnakennslu í Grundarfirði.
Hafnar eru framkvæmdir við stækkun Eyrbyggju - Sögumiðstöðvar. Stækkunin, við húsið norðanvert, kemur til með að hýsa snyrtingar/salerni. Vegna breyttrar notkunar hússins, sem áður var verslunarhús, þarf einnig að ráðast í ýmsar aðrar breytingar á því. Mikil vinna hefur verið lögð í hönnun er taki mið af því að ná fram sem mestri hagkvæmni og að starfsemin rúmist sem best í húsinu, auk þess sem lögð er áhersla á glæsilegt útlit og góða aðkomu að húsinu. Orri Árnason arkitekt sem á og rekur arkitektastofuna Zeppelin í Garðabæ hefur séð um alla arkitektavinnu.
Framhlið sögumiðstöðvar