Lítil síldveiði í Grundarfirði

 Lítil síldveiði hefur verið síðustu daga í Grundarfirði, að sögn skipsverja á Sighvati Bjarnarsyni VE frá Vestmanneyjum. Veður er frekar óhagstætt þessa dagana og lítið að sjá af síld. Þrír síldarbátar eru í höfn í Grundarfirði og nota sjómennirnir tíma til að slappa að og taka göngutúra um bæinn eða eins og einn skipsverjinn sagði; “aðeins að viðra sig.“ Ágætis veiði var á sunnudaginn var og fengu sumir bátar allt að 1000 tonnum yfir daginn.   Frétt á vef Skessuhorns.

Spurning vikunnar

Það voru að sjálfsögðu flestir ánægðir með bíósýningarnar um daginn þegar myndin Veðramót var sýnd. Þess má geta að á Rökkurdögum verður mikil bíóveisla. þá verða til sýningar margar góðar íslenskar myndir. Má þar m.a. nefna Astrópíu. Þannig að það er um að gera að fylgjast með þegar dagskráin verður birt.   Rökkurdagar hefjast þann 1. nóvember næstkomandi.

Er einhver með snjalla hugmynd um atvinnusköpun? Skoðið vef Impru.

  Ástæða er til þess að benda áhugasömum einstaklningum á eftirfarandi auglýsingu frá IMPRU sem er miðstöð fyrir frumkvöðla og sprotastarfsemi:     Frekari upplýsingar á www.impra.is

Vinnuverndarvikan 2007, Hæfilegt álag er heilsu best

  Vinnuverndarvikan 2007 verður 22. til 26. október næstkomandi. Vikan fjallar að þessu sinni um orsakir líkamlegra álagseinkenna s.s. verki í baki, hálsi og herðum.   Hápunktur vikunnar er ráðstefnan Hæfilegt álag er heilsu best sem fjallar um varnir gegn líkamlegum álagseinkennum. Ráðstefnan verður á Grand Hótel 23. október kl. 13.00 – 16.00, hún er öllum opin og aðgangur ókeypis. Þátttaka tilkynnist til Vinnueftirlitsins í síma 550 4600 eða á netfangið gudrun@ver.is. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér www.vinnueftirlit.is.

Árlegt málþing við KHÍ verður haldið dagana 18. og 19. október.

Yfirskrift Málþingsins er Maður brýnir mann - Samskipti Umhyggja Samábyrgð. Málþingið er vettvangur þeirra sem vilja koma rannsóknum, þróunar- og nýbreytnistarfi á framfæri til þeirra fagstétta sem starfa við menntun og þjálfun. Á málþinginu eru leikskólastjórar Leikskólans Sólvalla með kynningu á þróunarverkefninu ,,Ég og leikskólinn minn" Ferlimöppur til að skapa markvisst upplýsingaflæði milli skóla og heimilis.   Nánar um málþingið http://www.khi.is/?q=malthing2007

Rökkurdagar

Undirbúningsvinna fyrir Rökkurdaga er á fullu þessa dagana. Fólk sem hefur áhuga á að koma inn efni eða hefur góðar hugmyndir að slíku er beðið að hafa samband hið snarasta. Vinsamlegast hafið þá samband við Inga Hans í síma: 893-7714 eða Ragnheiði í síma: 847-7140

Sundlaugin

Það er farið að kólna í veðri og það þýðir að styttast fer í að sundlauginni verði lokað. Síðasti opnunardagur þetta haustið verður föstudagurinn 19. október. Opið verður til kl. 20.00. Þannig að það er um að gera að nýta þessa örfáu daga sem eftir eru og drífa sig í sund í góða veðrinu.

Ný gönguleið í grunnskólann fyrir skólabörn frá Hjaltalínsholti

Útbúin hefur verið ný gönguleið í grunnskólann fyrir skólabörnin sem búa á Hjaltalínsholtinu og þar í grennd.  Gönguleiðin liggur meðfram Ölkelduvegi að Hrannarstíg og svo meðfram Hrannarstígnum að Smiðjustíg.  Reiknað er með að börnin gangi svo meðfram Smiðjustígnum í skólann og sömu leið til baka.  Settar hafa verið gangbrautir á Ölkelduveginn og Hrannarstíginn þar sem eðlilegast er að fara yfir þessar götur á gönguleiðinni.  Þetta er gert núna til þess að börnin þurfi ekki að ganga alla leiðina eftir og meðfram Ölkelduvegi sem nú er illa fær vegna bygginga- og gatnaframkvæmda.  Framkvæmdirnar gera það að verkum í vetur að ekki verður unnt að leggja varanlega gangstétt meðfram Ölkelduveginum fyrr en næsta sumar í fyrsta lagi.  Foreldrar eru eindregið hvattir til þess að leiðbeina börnunum og vísa þeim á gönguleiðina.

Síldveiðar hafnar í Grundarfirði

Síldveiðiskipið Krossey SF 20 frá Hornafirði fékk 650 tonn af síld rétt fyrir utan Grundarfjörð í gærkvöldi og í dag. Jón Þorsteinsson háseti á Krossey sagði í samtali við Skessuhorn að þetta væri fín síld og fer hún öll til manneldis. “Við tókum fimm köst og í fyrsta kastinu voru einungis 50 tonn en í síðasta kastinu fengum við 200 tonn.” Segir Jón að Krosseyin sé nú á leið með aflann til vinnslu á Hornafirði. ,,Það er mikið minna af síld núna í Grundarfirðinum en í janúar síðastliðnum þegar við vorum þar síðast á veiðum. En við erum líka mikið fyrr á ferðinni. Við höfum einnig orðið varir við síld út af Vestmannaeyjum,” bætir Jón við. Hann segir óvíst um hvort skipið taki næsta túr á Grundarfjörð. “Ætli við prófum ekki að finna síld fyrir sunnan landið. Það er mikið styttra stím fyrir okkur á miðin,” sagði Jón.   Á myndinni er Krosseyin að taka síðasta kastið og dælir síldinni um borð. Í því voru 200 tonn af úrvalssíld sem öll fer til manneldis.   Sjá greinina á www.skessuhorn.is

Umsóknir til Grundarfjarðarbæjar um styrki á árinu 2008

Vakin er athygli þeirra sem hyggjast sækja um styrki af einhverju tagi til Grundarfjarðarbæjar á næsta ári, að umsóknarfrestur hefur verið auglýstur og er til og með 24. október n.k.  Ekki eru sérstök eyðublöð fyrir umsóknir.  Unnt er að senda umsóknir ásamt skýringum í bréfi til skrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður.