Íþróttamaður Grundarfjarðar 2007

Íþróttamaður Grundarfjarðar árið 2007 var kjörinn á fjölskylduskemmtun Kvenfélagsins Gleim mér ei sem haldinn var í samkomuhúsinu laugardaginn 24. nóvember sl.  Guðmundur Haraldsson hlaut titilinn að þessu sinni fyrir árangur í blaki.  Guðmundur er  í byrjunarliði unglingalandsliðs 16 ára og æfir einnig með unglingalandsliði 17 ára en Guðmundur er einungis 15 ára og á því bjarta framtíð fyrir sér í blakíþróttinni.     Alls voru sjö íþróttarmenn tilnefndir, þau eru eftirtalin:  Dominik Bjada fyrir árangur í knattspyrnu, Jóhanna Gústafsdóttir fyrir árangur í knattspyrnu, Kolbrún Grétarsdóttir fyrir árangur í hestaíþróttum, Steinunn Júlía Víðisdóttir fyrir árangur í frjálsum íþróttum, Valgeir Hólm Kjartansson fyrir árangur í mótorkross, Þór Geirsson fyrir árangur í golfi og Guðmunhur Haralddsson fyrir árandur í blaki.   Hér má sjá fleyri myndir

Nýjum Grundfirðingum færðar sængurgjafir

Í dag, 22. nóvember, færði Grundarfjarðarbær og Heilsugæslustöð Grundarfjarðar öllum ellefu Grundfirðingunum sem fæddir eru á þessu ári sængurgjöf frá sveitungum sínum.  Gjöfin innihélt m.a. fatnað, beisli, fræðslubækur, pollagalla, leikfang o.fl.  Börnum og foreldrum barna sem fædd eru á árinu var boðið í safnaðarheimilið í morgun til þess að taka við gjöfinni.   Hér má sjá myndir.  

Fyrsti saltfarmurinn í skemmu Saltkaupa

Frétt af vef Skessuhorns í dag Fyrsta saltið var sett í nýju saltskemmu Saltkaupa sem reist var í Grundarfirði í sumar. Komu alls um 1100 tonn af salti frá Túnis með skipi á laugardaginn. Jón Rúnar Halldórsson framkvæmdastjóri Saltkaupa segir í samtali við Skessuhorn að gert sé ráð fyrir að saltþörfin á Snæfellsnesi sé um 5000 tonn á ári.

Menningarráð Vesturlands auglýsir styrki til menningarviðburða fyrir árið 2008

  Samkvæmt samningi ríkisins og sveitarfélaga á Vesturlandi auglýsir menningarráð Vesturlands styrki til menningarverkefna á Vesturlandi fyrir árið 2008. Umsóknarfrestur rennur út laugardaginn 5. janúar 2008.      

Hin árlega fantasíukeppni haldin í Eden.

Í síðustu viku var hin árlega fantasíukeppni haldin í Eden. Þemað í ár var Þjóðsögur Íslendinga. Einungis þrjú lið skráðu sig til keppni en oftar hafa þau nú verið fleiri. Því voru veitt verðlaun fyrir öll sætin og fengum við Guðrúnu Ósk, sem dæmdi förðun, Guðbjörgu Friðfinns sem dæmdi fatahönnun og Eygló sem dæmdi hárgreiðslu, til að koma til okkar og hjálpa okkur með þessa frábæru keppni unglinganna.   Hér má sjá myndir af keppninni

Silfurleikar ÍR

  Hinir árlegu silfurleikar ÍR í frjálsum íþróttum voru haldnir laugadaginn 17. nóvember í nýju frjálsíþróttaaðstöðunni í laugardal.  2 keppendur fóru frá HSH að þessu sinni þau Arnar Þór Hafsteinsson Snæfelli og Steinunn Júlía Víðisdóttir UMFG.  Steinunn Júlía keppti í kúluvarpi meyja 15 – 16 ára og bætti sinn persónulega árangur.  Arnar Þór keppti í 11 – 12 ára flokknum og gekk vel í sínum greinum og kom heim með þrjú brons.   Steinunn Júlía og Arnar Þór  

Héraðsmót HSH.

Sonja, Guðbjörg og Alexandra                                               Héraðsmót HSH í frjálsum íþróttum var haldið sunnudaginn 11. nóv. síðastliðin í Stykkishólmi.  25 keppendur mættu frá UMFG og stóðu sig öll með stakri prýði.  Þau Jóhannes Geir Guðmundsson og Gréta Sigurðardóttir vöktu mikla athygli fyrir góðan árangur í hástökki og Gréta einnig fyrir 600 m hlaup þar sem hún hljóp í strákariðlinum og var á hælunum á þeim sem vann.  Frjálsíþróttadeildin skartar nýjum keppnistreyjum sem Kaupþing banki gaf og hafa krakkarnir vakið ómælda athygli fyrir að vera öll eins klædd.  Einnig auðveldar það þjálfara að fylgjast með krökkunum í keppni. Þeir sem vilja skoða úrslit mótsins geta farið inn á www.hsh.is  í úrslit móta.

Samkomulag um eldvarnir og fræðslu

Leikskólinn og slökkviliðið hafa undirritað samkomulag um að taka höndum saman um að auka öryggi barnanna og starfsfólksins með öflugu eldvareftirliti og fræðslu. Voru það leikskólastjóri og slökkviliðstjóri sem undirituðu samkomulagið. Hlutverk slökkviliðsins: Slökkviliðið heimsækir leikskólann tvisvar á ári hverju. Annars vegar til að skoða hvernig eldvörnum er háttað og ráðleggja um úrbætur. Hins vegar til þess að ræða við elstu börnin um eldvarnir. Slökkviliðið leggur til allt fræðsluefni í þessu sambandi.   Hér má sjá fleiri myndir

Á morgun er Forvarnadagur í grunnskólum

Miðvikudaginn 21. nóvember er Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Þá verða kynnt nokkur heillaráð sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum. Athygli foreldra unglinganna verður einnig vakin á þessum ráðum sem og allra fjölskyldna í landinu. Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Á eftirfarandi slóð er að finna margvíslegar upplýsingar um málefnið.http://www.forvarnardagur.is/

Samkaup og Lyfja opnuðu í Grundarfirði

Frétt á vef Skessuhorns Samkaup Úrval opnaði formlega nýja verslun í Grundarfirði síðastliðinn föstudag með pompi og prakt. Margs konar opnunartilboð voru í gangi og fjölmargir gestir komu og skoðuðu nýju verslunina og var ekki annað að sjá en að Grundfirðingar og næsveitungar væru mjög sáttir. Verslunin er 300 fermetrar að stærð.  Lyfja opnaði einnig verslun í sama húsnæði.  Aðalheiður Pálmadóttir, forstöðumaður verslana- og markaðssviðs Lyfju sagði í samtali við Skessuhorn að Lyfja hafi verið í afar litlu og óhentugu húsnæði í Grundarfirði síðustu ár og væri þetta því kærkomin breyting.   Sjá nánar í Skessuhorni sem kemur út á morgun.