Háls-, nef og eyrnalæknir

Þórir Bergmundsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilsugæslunni Grundarfirði föstudaginn 27. febrúar n.k. Tekið er á móti tímapöntunum á Heilsugæslustöð Grundarfjarðar, í síma 432 1350    

Bæjarstjórnarfundur

182. fundur bæjarstjórnar Grundarfjarðar verður haldinn í Ráðhúsi Grundarfjarðar fimmtudaginn 12. febrúar 2015, kl. 16:30. 

Hreystivika 16. - 22. febrúar 2015

Á síðasta ári var blásið til Hreystiviku í Grundarfirði. Vikan heppnaðist vel og því var ákveðið á fundi íþrótta- og æskulýðsnefndar að endurtaka leikinn og er því hér væntanlega um árlegan viðburð að ræða. Dagskráin í ár er fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem boðið verður uppá er skák, bardagalist að hætti víkinga, golf og margt fleira. Dagskránna er að finna hér. 

112 dagurinn í Grundarfirði

Í tilefni 112 dagsins, þann 11. febrúar, munu viðbragðsaðilar á svæðinu taka höndum saman til að vekja athygli á starfsemi sinni og ítreka mikilvægi þess að þekkja númerið 112 og hlutverk þess. Í ár verður öryggi og velferð barna í öndvegi og mikilvægi þess að börn og ungmenni geti brugðist rétt við slysum og erfiðum aðstæðum. Skólarnir munu fá heimsókn frá björgunarsveitinni og slökkviliði þar sem lögð verður áhersla á að allir þekki mikilvægi 112 númersins.    

Laust starf við Grunnskóla Grundarfjarðar

Grunnskóli Grundarfjarðar óskar eftir að ráða íþróttakennara í tímabundna stöðu í 10 vikur. Um er að ræða 8 kennslustundir sem dreifast á fjóra virka daga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og hafi reynslu og áhuga á að vinna með börnum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum. Vinsamlegast hafið samband við skólastjóra Gerði Ólínu Steinþórsdóttur í síma 430-8550 eða 822-5630.  

Ungbarnagjafir

  Börnum fæddum árið 2014 voru færðar gjafir í Sögumiðstöðinni í liðinni viku. Alls fæddust 16 Grundfirðingar árið 2014 sem er aukning frá því árinu áður. Gjafirnar eru undirbúnar í samstarfi við heilsugæsluna og leikskólann. Foreldrar ásamt börnumn sínum áttu huggulega samverustund með bæjarstjóra og fulltrúum bæjarstjórnar. Fleiri myndir er að finna á Facebooksíðu bæjarins.    

Skrifstofuskólinn – Dreifnám – vorönn 2015 –Skráning núna!

Hefur þú áhuga á að vinna við skrifstofustörf eða viltu efla þig í starfi?   Fyrsta staðlota í Borgarnesi áætluð 6. -7.  febrúar 2015. Símenntunarmiðstöð Vesturlands stefnir á  að fara af stað með  Skrifstofuskólann  í janúar 2015.  Skrifstofuskólinn er 160 klukkustunda nám ætlaður fólki 20 ára og eldra sem hefur stutta eða jafnvel enga formlega skólagöngu að baki, vinnur almenn skrifstofustörf eða hefur hug á því.  

Nýjar bækur á Bókasafni Grundarfjarðar

Slatti af nýju bókunum er kominn fram yfir skilafrest. Látum nýju bækurnar ganga en fáum frekar lengri frest á þeim eldri. Þigg ábendingar um bókakaup. Næsta pöntun er um mánaðamótin. Sjá myndir.

Laust starf við Grunnskóla Grundarfjarðar

Laust er til umsóknar staða skólaliða í rúmlega 60% starf við Grunnskóla Grundarfjarðar. Í starfinu felast meðal annars ræstingar, matarskömmtun og vinna með nemendum. Vinnutíminn er frá klukkan 8:00 -13:00. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.   Vinsamlegast hafið samband við skólastjóra Gerði Ólínu Steinþórsdóttur í síma 430-8550 eða 822-5630.    

Auglýsing um samþykkt Svæðisskipulags Snæfellsness 2014-2026

Svæðisskipulagsnefnd fimm sveitarfélaga á Snæfellsnesi samþykkti þann 14. nóvember 2014 tillögu að Svæðisskipulagi Snæfellsness 2014-2026.   Í svæðisskipulaginu, sem ber yfirskriftina „Andi Snæfellsness - auðlind til sóknar“, er sett fram stefna um byggðar- og atvinnuþróun á Snæfellsnesi sem miðar að því að atvinnulífið, þekkingargeirinn og samfélagið nýti sér í auknum mæli náttúru- og menningarauð Snæfellsness og að skipulag og mótun byggðar og umhverfis taki mið af honum.   Tillagan var auglýst og lá frammi til kynningar frá 4. september til 20. október 2014. Engar athugasemdir bárust en ábendingar frá þremur aðilum urðu tilefni minniháttar breytinga á tillögunni. Nefndin sendi sveitarstjórnunum tillögu sína að svæðisskipulagi þannig breytta, ásamt ábendingum og umsögn sinni um þær. Tillagan var samþykkt af sveitarstjórnum Eyja- og Miklaholtshrepps, Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar í desember 2014. Nefndin hefur afgreitt svæðisskipulagstillöguna til Skipulagsstofnunar til staðfestingar og svarað ábendingum sem bárust. Svæðisskipulagið öðlast gildi þegar afgreiðslu Skipulagsstofnunar lýkur og skipulagið hefur verið auglýst í B-deild Stjórnartíðinda. Skipulagið ásamt fundargerð svæðisskipulagsnefndar, þar sem ábendingar voru afgreiddar, má skoða á vefnum snaefellsnes.is/svaedisskipulag   Svæðisskipulagsnefnd sveitarfélaganna á Snæfellsnesi